Ísland
  Íslenskar auðlindir
 

Íslenskar auðlindir

 

Fiskur

Þegar íslendingar uppgötvuðu fiskinn við Íslandsstrendur og vötn hefur hann verið mesta auðlind Íslendinga í langan tíma. Fiskurinn hefur fætt landan um árabil og ýmsar aðferðir eru til að bera hann fram með bestu list. Hann er hertur, flakaður, saltaður, reyktur og svo fleira sé nefnt og geymdur til lengri tíma og einnig sem hann var útfluttur til annara landa. Fiskurinn hefur því verið það mikilvægasta sem landinn hefur átt og mun eiga í komandi framtíð. 


Rafmagn

Ísland hefur óheyrilega mikið magn af hreinu vatni og við ýmsar straumharðar ár eru virkjanir sem nýta vatnið til rafmagnsmyndunar. Vegna þess hve margar virkjanir eru á Íslandi hefur landið hreina orku til ýmissa nota auk þess sem rafmagnið mengar ekki. Það hefur verið notað lengi sem hagstæður orkugjafi.


Bústofnar

Helsti landbúnaður hérlendis sem hefur gagnast landanum í mörg ár eru til dæmis ræktun á kúm, svínum, hænsnum, kindum og hestum auk annarra smærri bústofna. Hesturinn var hagstæður ferðamáti hér á árum áður. 

Jarðvarmi

Vegna þess hve mikil eldvirkni er í iðrum jarðar undir Íslandi er jarðvarminn nýttur mikið sem hitunaraðferð í húsum innanlands. Á ýmsum stöðum hafa verið gerðar varmavirkjanir sem leiða rör til borga og bæja sem nýta heita vatnið sem dýrindis kyndingu.


Landbúnaður

Þegar líða fór á tímann hefur landbúnaður verið nýttur mikið sem til breyting á fiskinum og öllu hinu ruglinu. Harðgerðar plöntur og græmmeti eru nýttar mikið sem gómsætar fæðutegundir og verða það lengi hér á landi.


Ál

Nýstárleg auðlind Íslendinga er nýting á málminum áli. Mest af honum er fluttur til útlanda en hann er líka notaður hér á landi. Við Íslendingar græðum mikið af útflutningi á áli og víða eru álver á Íslandi sem býr það til.


Olía (kannski á Drekasvæðinu)

Olía hefur enn ekki fundist á Íslandi en mikið hefur verið rætt um hvort olía finnist á svæði sem nefnist Drekasvæðið. Það er við norðaustur Ísland. Finnist þar olía er hún mikilvæg fyrir efnahag Íslendinga á leið þeirra útúr kreppunni.

 

 
  Today, there have been 3 visitors (16 hits) on this page!  
 
This website was created for free with Own-Free-Website.com. Would you also like to have your own website?
Sign up for free