Dýralíf á Íslandi
Það sem einkennir dýralíf Íslands er að það hefur bjargað Íslendingum frá upphafi landnáms og hefur lifað gengum íslensku náttúrinni í aldaraðir og fætt og klætt Íslendinga. Helstu flokkar dýralífsins eru húsdýrin, fuglar, skordýr ásamt hvölum og fiskum í sjónum.
Húsdýr
Húsdýrin komu fyrst með landnámsmönnum Íslands og hafa þau verið hér á Íslandi með þeim sem öldum skiptir og verða það en í mörg ár í viðbót. Helstu húsdýrin eru kýr, kindur, geitur, svín, hundar, kettir, hestar, hreindýr og hænur. Margar afurðir hafa fengist frá öllum þessum húsdýrum s.s. ull frá kindum, mjólk úr kúm, egg frá hænunum og kjöt frá svínunum sem við höfum nýtt í áraraðir í dagsins tönn ásamt öðrum afurðum frá náttúrunni og aðra hluti nútímans.
Fuglar
Fuglarnir hérlendis hafa verið hér lengur en elstu menn muna ásamt öðrum villidýrum og skordýrum. Nokkrir íslenskir fuglar eru nýttir til matar auk eggja þeirra en aðallega er verið að meina hænuna. Fuglar Íslands eru skipt í sjófugla, vaðfugla, máffugla, vatnafugla, landfugla og spörfugla. Sumir fuglar eru samt nefndir farfuglar og koma þeir aðalega á sumrin hér til lands.
Skordýr
Eins og farfuglarnir er skordýraflóran á Íslandi mest um sumarið því íslensku skordýrin hérlendis koma hingað um sumarið og eru algeng á þeim tíma. 1300 tegundir hafa verið fundnar á Íslandi en 18-25 þúsund tegundir í Evrópu sem leiðir til uppruna skordýranna að þau koma flest öll frá Evrópu og suðurlegum löndum í heiminum. Nokkrir stofnar hafa verið stofnaðir til verndar skordýranna t.d. býflugnastofninn. Eins og í flestum löndum eru hér á landi flugur,bjöllur og áttfætlur svo fleira sé nefnt en skordýr á Íslandi verða ekki stærri en þumalfingur svo ekki þarf að hafa neinar áhyggjur.
Sjávardýr
Í sjónum við strendur Íslands iðar sjórinn af lífi. Frá örófi alda hefur fiskurinn í sjónum verið það mikilvægasta fyrir okkar íslendinga í aldaraðir en margar deilur komu samt upp í Þorskastríðinu svokallaða þegar Bretar hernámu Ísland og fóru að veiða á íslensku miði og leiddi það til að við Íslendingar höfum nú 200 mílna efnahagslögsögu. Fjölmörg smádýr í sjónum koma ekki mikið til gagns en krabbar, humrar og rækjur hafa verið nýttir til matar og annar skelfiskur t.d. kræklingur og hörpudiskur. Hvalir eru dýrindis spendýr sem draga að fjölda ferðamanna til landsins en líka íslendinga til dráps því hvalkjöt er notaður sem herramanns matur á íslandi og annars staðar.


|