Ísland
  Myndun Íslands
 

Myndun Íslands

Við upphaf meginlandana voru þau öll samantengd í eitt meginland nefnt Pangea. Á sjávarbotni byrjuðu jarðskorpuflekarnir að hreyfast og við þá hreyfingu byrjaði Pangea að gliðna í sundur. Norður-Ameríka og Evrópu aðskildust og við það byrjaði Ísland að myndast þegar þessi tvö meginlönd byrjuðu að fjarlægast hvor aðra. Í miðju á þessu hafi myndaðist ný skorpa á hafsbotni við uppstreymi efnis úr iðrum jarðar. Uppstreymið myndaði hrygg ,svonefndan Atlantshafshrygg, og var þá eldvirkni mikil á hafsbotni í þessum hryggi. Jarðskorpuflekarnir færast 2cm á ári og við þá hreyfingu varð mikil eldvirkni með stöðugu hraunrennsli sem hlóðst upp með tímanum þangað til hann náði yfirborðinu og mynduðu litlar eyjar.  Á meira en 125 milljóna tímabili myndunar Íslands og færslu jarðskorpuflekana á þessu svæði varð Ísland til þegar hraunið náði upp á yfirborðið og stækkaði  Ísland þá með áframhaldinu. Nánar má útskýra það að við hreyfingu flekanna sem færast frá hvor öðrum myndast bil á milli og sjávareldgos voru í óðaönn að fylla í bilið og þar með stækkaði Ísland með tímanum.

 


 


 
  Today, there have been 3 visitors (23 hits) on this page!  
 
This website was created for free with Own-Free-Website.com. Would you also like to have your own website?
Sign up for free