Ísland
  Helstu ár Íslands
 

Helstu ár Íslands

Þjórsá

Þjórsá er lengsta á Íslands og hefur upptök sín í Hofsjökli og rennur þar suður til sjávar vestan Þykkjvabæjar. Hún er 230km löng.

 

Jökulsá á fjöllum

Eins og nafnið gefur til kynna hefur Jökulsá á fjöllum upptök sín í Vatnajökli og rennur frá honum 206km leið til sjávar vestur til Axarfjarðar.  Við Jökulsá á fjöllum myndast fossinn Dettifoss og þar er líka þjóðgarðurinn Ásbyrgi.

 

Ölfusá/Hvítá

Ölfusá er vatnsmesta á Íslands og myndast í Langjökli. Nánar tiltekið myndar Langjökull lón sem nefnist Hvítárvatn og rennur það eftir árfarvegi suður til sjávar sem Hvítá. Við bæinn Selfoss er brú og undir hana rennur Ölfusá sem myndast af Hvítá og öðrum ám en þá hefur hún runnið frá Langjökli 185km leið.

 

Skjálfandafljót

Skjálfandafljót hefur upptök sín í Vatnajökli en mesta af vatninu rennur frá Lindarvatni í Ódáðahruni. Þetta gerir það að verkum að fiskur gengur upp eftir ánni og talsvert af silungi og laxi. Í Skjálfandafljóti er Goðafoss en þar kastaði Þorgeir Ljósvetningagoði goðalíkneskjunum sínum eftir kristintöku. Skjálfandafljót er 178km að lengd.

 

Jökulsá á Dal/Brú

Í Vatnajökli nánar við Brúarjökul myndast Jökulsá á Dal eða Brú sem er einnig nefnd Jökla. Jökulsá á Dal fellur um Jökuldal til Héraðsflóa í suðri um 150km leið og við árós Jökulsár á Dal mætast Lagarfljót við Héraðssand. Auk þess að vera virkjuð með Kárahnjúkavirkjun er hún lengsta á austurlands.


Lagarfljót

Lagrfljót er jökulá sem fellur um Fljótshérað 140km leið til Héraðsflóa. Í Lagarfljóti er svokallaður Lögurinn og er það talið heimkynni Lagarfljótsormsins og einnig dýpsti punktur Íslands, 112 metrar

 

Héraðsvötn

Héraðsvötn er jökulá í Skagafirði. Hún á upptök sín í Austari- og Vestari-Jökulsá í Hofsjökli sem renna saman í Héraðsvötn auk þess renna Norðurá og Sæmundarkvísl til hennar. Í miðri Blönduhlíð skiptast Héraðsvötn síðan í tvær kvíslar sem renna í sjó sitt hvoru megin við Hegranes. Kallast kvíslarnar Vestari- og Austari-Héraðsvötn. Héraðsvötn eru 130km löng.

Blanda

Ásamt Héraðsvötnum á Blanda upptök sín í Hofsjökli og rennur um Austur-Húnavatnssýslu til Húnaflóa 125km leið. Við ósa Blöndu er bærinn Blönduós og var hún einu sinni virkjuð og var þá mikill lax í ánni.

Hvítá í Borgarfirði

Hvítá hefur upptök sín Eiríksjökli og rennur út í hafið nálægt Borganesi. Nokkur veiði er þar og Barnafoss er í Hvítá. Hvítá er 117km löng.

 

Skeiðará

Á skeiðarársandi eru margar ár sem renna til sjávar frá Vatnajökli. Ein af þeim er Skeiðará sem er 30km löng á sem hefur upptök sín í Skeiðarárjökli.  Vegna stöðugrar bráðnunar á ís í Grímsvötnum verður stundum til jökulhlaup og aurskirður sem renna eftir Skeiðarársandi 30km til sjávar. Í Gosinu 1996 varð til mikið Jökulhlaup og rann feikilega mikið af jarðvegi til sjávar eftir Skeiðarársandi og þetta hlaup eyðilagði Brúna yfir skeiðará sem er lengsta brú á Íslandi.

 

 
  Today, there have been 2 visitors (5 hits) on this page!  
 
This website was created for free with Own-Free-Website.com. Would you also like to have your own website?
Sign up for free