Ísland
  Helstu vötn Íslands
 
Helstu vötn Íslands

Þingvallavatn

Þingvallavatn er stærsta stöðuvatn Íslands, 82 km2. Þingvallavatn er dýpst 114m en meðaldýpt vatnsins er 34m . Þingvallavatn er fjórða dýpsta vatn landsins. Vatnið er 3-4°C allt árið. Þingvallavatn er talið 12.000 ára gamalt.  Í vatninu er mikill gróður eða um 1/3 af botni vatnsins. Í vatninu má veiða nokkrar tegundir silungs s.s urriða, þingvallableikju, ránbleikja er mikið veidd og murtan. Veiðimenn verða að fara varlega því að á stuttum tíma getur vatnið breyst úr kyrrlátu og sléttu vatni í mikinn ólgusjó ef hvessir.



Þórisvatn

Þórisvatn er stærsta vatn öræfanna norður af veiðivötnum. En það er næst stærsta vatn landsins og það fimmta dýpsta. Vatnið er staðsett milli Köldukvíslar og Hraunavatn á hálendi Rangárvallasýslu. Upprunalega var það um 70 km2. Nú þegar vatnsmiðlun þess er full þá getur það orðið 83 km2, mesta dýpt vatnsins er 109m. Vatnið er þekkt af veiðimönnum fyrir stóra urriða.



Lagarfljót

Lagarfljót er rétt hjá Egilsstöðum og rennur í gegnum Egilsstaði. Það er 140km langt frá upptökum í Norðurdal, þar heitir áin Jökulsá í Fljótsdal. Lögurinn er 35 km langur og mesta dýptin er 112m. Vatnið er 53km2 og sjötta dýpsta vatn Íslands. Þjóðsaga segir að það dvelji stór ormur í fljótinu. Kona gaf dóttur sinni hring úr gulli. Dóttirin lagði lítinn orm á hringinn, svo fór hringurinn og ormurinn að stækka. Stúlkan varð svo hrædd að hún fleygði orminum og hringnum í fljótið. Ormurinn stækkaði og stækkaði, hann fór að drepa fólk og skepnur sem komu nálægt fljótinu. Enginn gat drepið orminn svo það voru fengnir göldróttir Finnar til að drepa orminn. Þeim tókst að binda orminn við botninn, sumir telja sig þó hafa séð til ormsins.



Mývatn.

Mývatn er 37 km2 og er frægt fyrir fjölskrúðugt fuglalíf. Vatnið er ekki djúpt, dýpst er það 5 metrar. Vatnið hefur margar fallegar eyjar eða um 40. Nafn vatnsins er dregið frá öllu mýinu sem er á svæðinu sem er tvenns konar, bitmý og rykmý. Mýið er mikilvæg fæða fyrir margar tegundir fugla og fiska. Mývatn er ofauðgað sem þýðir að umhverfi þess hefur verið raskað. Ofauðgun stafar aðallega af afgangi áburðarefna úr t.d. landbúnaði.



Hvítárvatn

Hvítárvatn er 30 km2 og er því fimmta stærsta stöðuvatn landsins.  Vatnið er staðsett undir miðjum Langjökli, austan megin. Jökuláin Fúlakvísl fellur í það og því er vatnið jökullitað. Dúpst er vatnið 84m en meðaldýptin er tæpir 28m og það er áttunda dýpsta vatnið.
 



Hópið

Hópið er 30 km2. Vatnið er í Húnafirði, Í því gætir flóðs og fjöru. Þingeyjasandur skilur á vatnið frá sjónum. Tvær þekktar veiðiár renna í Hópið það eru Víðidalsá og Gljúfraá, þær eru þekktar laxveiðiár.

Langisjór

Langisjór er 26 km2 og er suðvestan undir Vatnajökli. Langisjór er af mörgum talið einn fallegasti staður Íslands. Vatnið er mjög tært og liggur á milli stórra fjalla sem sum ganga þverhnýpt ofan í vatnið. Langisjór var ekki fundinn fyrr en um 1889, það var Þorvaldur Thoroddsen sem fann og nefndi þessa náttúruperlu Íslands. Mesta dýpt vatnsins er um 74m og er því níunda dýpsta vatn landsins.



Kvíslavatn

 

 

Kvíslarvatn er 20 km2, vatnið er vogskorið og um 12km langt. Landsvirkjun hóf framkvæmdir þar árið 1980. 



Sultartangalón


Sultartangalón er 19 km2 og er staðsett tæplega 30 km norður af Heklu. Það er búið að gera virkjun í Sultartangalóni. 

 Apavatn

Apavatn er 13 km2  staðsett sunnan Laugarvatns. Vatnið er frekar grunnt og mesta dýpið er 3 metrar. Margir velta því fyrir sér af hverju vatnið heitir apavatn, nafnið er dregið frá orðinu ap sem merkir leir eða drulla. Í vatninu er mjög mikið magn af silungi, mest bleikja. Þrátt fyrir mikið magn silungs í vatninu er það ekki gott fyrir stangveiði. 

 

Svínavatn

Svínavatn er 12 km2 og er í Austur Húnavatnssýslu. Mesta dýpt vatnsins er tæpir 39m. Sléttá og Svínadalsá renna í vatnið en Efri- Laxá er afrennslið.



Öskjuvatn

Öskjuvatn er dýpsta stöðuvatn Íslands en dýpst er það heilir 220m. Flatarmál vatnsins eru 11 km2. Vatnið er staðsett á austurlandi við eldfjallið Öskju. Öskjuvatn varð til við Öskjugos árið 1875.

 

 
  Today, there have been 3 visitors (20 hits) on this page!  
 
This website was created for free with Own-Free-Website.com. Would you also like to have your own website?
Sign up for free