Ísland
  Helstu fossar Íslands
 


Fossar íslands

Glymur.
Hæsti foss landsins er í Botnsá Hvalfirði sem er 190 metrar. Botnsá rennur úr Hvalvatni og rennur ofan í djúpt gljúfur sem gerir fossinn svona háan. Botnsá skiptir Borgarfjarðar- og kjósasýslu. Vogsbotninn er sumstaðar virkilega fallegur og kjarri vaxinn, svæðið er mjög hentugt til útivistar. Það getur verið erfitt að sjá allan fossinn vegna þess að mikið er að lausu grjóti og getur það verið erfitt yfirferðar, annars er hægt að ganga meðfram ánni og inn að enda fossins. 



Hengifoss.
Hengifossá rennur úr Hengifossárvatni í Fljótsdalshéraði og fellur í Lagarfljót, Hengifoss er 126 metra hár. Litanesfoss er neðar í ánni og er hann talinn vera með fegurri fossum á landinu og það er einkum vegna fallegra stuðlabergsmyndana. 


Háifoss
Háifoss er í Fossá í Þjórsárdal, hann er 122 metra hár og er þriðji stæsti foss landsins. Dr. Helgi Pétursson nefndi fossinn uppúr aldamótunum 1900. Ef þú vilt komast að fossinum er hægt að fara línuveginn sem er á milli Sandafells og Tungufells, þaðan þarf að ganga nokkurn spöl þangað til þú kemur að brúnum gilsins og sérð fossinn.

Seljalandsfoss
Seljalandsfoss er skammt frá þjóðvegi 1 á suðurlandi, eða rétt hjá afleggjara vegarins sem liggur til Þórsmarkar. Hægt er að labba hring í kringum fossinn, en það getur verið hættulegt vegna þess að göngustígurinn getur verið háll. Fossinn er 65 metra hár. Svæðið í kringum fossinn er virkilega fallegt og er hægt að koma og tjalda á tjaldsvæði sem er rétt hjá, ef maður vill skoða sig um. 



Skógarfoss
Skógarfoss er aðeins austar á landinu en Seljalandsfoss, þú hefur séð Skógarfoss ef þú hefur til dæmis gengið fimmvörðuhálsinn. Skógarfoss er talinn vera meðal fegurstu fossa á íslandi. Í Skógá eru margir fossar ofar í ánni og eru þeir margir hverjir virkilega fallegir, göngustígur er upp með ánni þannig maður getur skoðað þá flesta. Gömul þjóðsaga segir að falin sé gullkista í helli á bakvið fossinn. Það hafa margir reynt að ná í kistuna en einu sinni var búið að koma bandi á hring kistunnar, en hringurinn kom bara þegar að togað var í, hringurinn er nú geymdur í Skógum. 

Dettifoss
Dettifoss er í ánni Jökulsá á fjöllum og er fyrir Norðan land rétt hjá Ásbyrgi. Dettifoss er 44 metra hár og 100 metra breiður og er hann aflmesti foss Íslands. Hafragilsfoss sem er fyrir neðan Dettifoss er 27 metra hár og Selfoss sem er fyrir ofan Dettifoss er 10 metra hár. Ástaða er fyrir því að fara varlega að Dettifossi, því að dauðaslys hafa komið sér stað á veginum til Dettifoss.

 

Gullfoss
Gullfoss er Í Hvítá og rennur hann í tveimur þrepum niður í glúfrið, fyrri fossinn er 11 metra hár en sá síðri er 21 metra hár. Gljúfrið sem fossinn rennur ofaní hefur verið að myndast síðustu 10.000 árin, 25 sentimetra á ári. Saga segir að fólk hafi vaðið yfir ána í gamla daga, en áin er mjög kraftmikil. Gullfoss er rétt hjá Geysi sem er staður þar sem heitt vatn kemur upp úr gati í jörðinni. Árið 1930 og 1948 komu svo stór flóð í ána að gilið fylltist og fossinn hvarf. Uppúr 19 öld eignaðis erlent fyrirtæki fossinn og það hugðist virkja fossinn, en Sigríður Tómasdóttir sem var eigandi og búandi í Brattholti höfðaði mál gegn fyrirtækinu, hún tapaði miklu fjár, en fossin komst aftur í eigu Íslendinga. Í dag á Íslenska ríkið fossinn.

Hjálparfoss

Hjálparfoss er tvöfaldur foss sem er í Fossá í Þjórsárdal, rétt áður en hún sameinast Þjórsá. Þar sem fossarnir enda er lítið vatn, það getur verið gaman á hlýjum vetrardegi að stökkva útí vatnið og baða sig í fossinum og ánni. Svæðið í kringum fossinn heitir Hjálp og er virkilega fallegt svæði.

Reykjafoss
Reykjafoss tengir saman Svartá og Húseyjarkvísl í Skagafirði. Mikill fiskur gengur upp Húseyjarkvísl, en stoppar fiskurinn í fossinum, því hann er svo brattur svo allur sá fiskur sem er í Svartánni er staðbundinn. Reykjafoss er ekki skammt frá vegi, en stuttan malarveg þarf að keyra að fossinum ef þú vilt sjá hann, einnig er hægt að fara til Vindheimamela og þá er einnig stutt ganga að fossinum.

 

Goðafoss
Goðafoss er staðsettur á norðurlandi, milli Akureyrar og Mývatns. Goðafoss er virkilega fallegur foss sem  er eins og ,,U“ í laginu og rennur í Skjálfandafljóti og er aðeins stuttan spöl frá þjóðveginum. Áin á upptök sín í Vonaskarði. 

 

 
 
  Today, there have been 2 visitors (3 hits) on this page!  
 
This website was created for free with Own-Free-Website.com. Would you also like to have your own website?
Sign up for free