Ísland
  Helstu fjöll Íslands
 

Helstu fjöll Íslands

Hvannadalshnjúkur

Hvannadalshnúkur, eða Öræfajökull er tengdur við stærsta jökul í Evrópu Vatnajökul. Hvannadalshnjúkur er 2110 metra hár. Hvannadalshnjúkur er topplaus eldkeila, þessi eldkeila er talin önnur  virkasta eldkeila í heiminum. Öræfajökull var kallaður Knappafell fyrir gos árið 1362. Eftir gosið 1362 eyddist byggðin og leit þá landið út eins og eyðimörk, eftir gosið var svæðið kallað Skeiðarársandur og Breiðamerkursandur. Eldkeilan hefur tvisvar sinnum gosið, það voru árin 1362 og 1727, gosið árið 1362 fyllti ána og hún tók með sér marga bæi. Gosið 1727 var mjög langvarandi og linnti ekki fyrr en ári síðar, færri bæir, fólk og búfé fórst í þessu gosi vegna þess að bæir stóðu hærra. 




Í Skaftafelli
 

Daglangt hefur vetrarsólin
klifið Hvannadalshnjúk
og sigrað hvert ský.

Á fáa fiska leggjast
lýstar höfuðborgir.

Engin úti í heimi
trúi ég finnist
breiðgata á borð við
þennan sand.

Enn grætur rústin blá
við Gígjukvísl.

Við höldum á
í fátæktinni rík.

Birgir Svan Símonarson

Snæfell

Snæfell er norð-austan við Vatnajökul, fjallið er 1.833 metrar á hæð. Snæfell er hæsta staka fjall á Íslandi. Á góðviðrisdegi er mjög gott útsýni í flestar áttir af þessum tindi. Fjallið er keilulaga, enda var þetta eldfjall, fjallið myndaðist um Ísöld og er því yngsta eldstöð á austurlandi en það hefur ekki gosið í yfir 10 þúsund ár. Fjallið er í það mikilli hæð yfir sjáfarmáli að ekki allur snjór fer af toppnum af fjallinu yfir sumartímann. Það er nokkuð auðvelt að klífa fjallið frá Sæluhúsi Ferðafélagsins. Slóðar fyrir bíla liggja upp úr fljótsdal og Hrafnkelsdal að Snæfelli.



Við Snæfell

Gnæfir
bergnuminn 
við auðn og lágan
gróður

risinn

hvítur fyrir hærum

og horfir
yfir gæsabyggðina

óttast ekkert
allra sízt

fuglahræður.

Matthías Johannessen

Herðubreið

Fyrir Austan land í Ódáðahrauni rís rofinn fjallgarður, syðst Herðubreiðartögl, síðan Herðubreið og norðan hennar Herðubreiðarfjöll. Herðubreið er stapafjall sem er 1682 metra hátt og með stóran gíg á toppnum. Yfir umhverfið rís hún 1000-1100 metra og efst er bratt hamrabelti. Hæsti punktur fjallsins er á suðvestur af fjallinu og þaðan er geysilega gott útsýni yfir allt land á góðviðrisdegi. Besta leiðin upp á fjallið er að norðvestanverðu fjallinu en fjallið er mjög bratt sumstaðar þannig að gott er að halda hópinn. Herðubreið var fyrst klifið þann 13. ágúst árið 1908. 



Á Sprengisandi

 

Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn,

rennur sól á bak við Arnarfell,

hér á reiki er margur óhreinn andinn,

úr því fer að skyggja á jökulsvell;

Drottinn leiði drösulinn minn,

drjúgur verður síðasti áfanginn.

 

Þey þey! þey þey! þaut í holti tóa,

þurran vill hún blóði væta góm,

eða líka einhver var að hóa

undarlega digrum karlaróm;

útilegumenn í Ódáðahraun

eru kannske að smala fé á laun.

 

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,

rökkrið er að síða á Herðubreið,

álfadrottning er að beizla gandinn,

ekki er gott að verða á hennar leið;

vænsta klárinn vildi eg gefa til

að vera kominn ofan í Kiðagil.

 

Grímur Thomsen

Kerling

Kerling er fyrir Norðan land ekki langt frá Akureyri, fjallið er er hæst norðlenskra fjalla 1538 metrar, mjög gott aðgengi er að fjallinu og getur því verið gaman að ganga á fjallið á góðviðrisdegi og gott útsýni er líka af fjallinu. Fjallið er að mestu leiti úr blágrýti en efsti hlutinn af fjallinu er úr ljósgrýti. Milli jóla og nýárs árið 1980 fóru fimm skátar á stað og ákváðu að klífa Kerlingu. Þeir sváfu í tjaldi um nóttina og gerði á þá stórhríð að norðri og reif vindurinn tjaldið í tætlur. Tveir skátanna ætluðu í byggð til þess að fá hjálp, en aðeins annar komst á leiðarenda. Annar skátinn var dáinn þegar að hjálp barst.



Fjall 8 

Innmeð súlum 
situr kerling

og fer sient
úr þessu

þó utan bíði enn
Kaldbakur allur
og kvikur
í kvöldsólinni

Sigmundur Ernir Rúnarsson

Hekla

Hekla er eldfjall sem er 1500 metrar á hæð og er á suðurlandi, þetta er mjög vinsæl gönguleið og hafa menn líka farið upp á Heklu á vélsleðum, jeppum og fjórhjólum. Hekla er virkt eldfjall sem að gaus síðast árið 2000. Fjallið stendur á um það bil 40 kílómetra langri gossprungu en fjallið sjálft er ekki nema 5 km á lengd. Eldfjallið er 6000-7000 ára gamalt  og megineldstöðvar þess eru 100.000 ára gamlar. Hekla hefur gosið 20 sinnum á sögulegum tíma, þetta voru árin 1104, 1156, 1206, 1222, 1300, 1341, 1389, 1510, 1597, 1636, 1693, 1766, 1845, 1947, 1970, 1981, 1991, 2000. Eins og sést á þessum ártölum þá hefur Hekla gosið á 10 ára fresti seinustu fjögur skiptin og því búast menn við því að Hekla fari að gjósa fljótlega. Stærsta gosið var árið 1300, þá rifnaði fjallið endilangt hljóðið í gosinu heyrðist alla leið norður á land. Bæir féllu í jarðskjálftum sem stafaði að gosinu og mikil harðindi fylgdu þessu gosi, þetta stóð í heilt ár. Árið 1510 þeytti Hekla steinum svo langt að einn steinn þeyttist í 45 km og drap mann.



Hekla

Ást mín á þér er eins og Hekla 
á yfiborðinu virðist hún kulnuð
og útbrunnin

en undir niðri ólgar hún 
og áður en varir 
brýst hún út

mig langar til að fylla þig
með mínum lífsins
kvikustrókum

Andri Snær Magnason

Kerlingafjöll

Kerlingafjöll eru fjöll sem eru á milli Hofsjökuls og Langjökuls og ekki langt frá Hveravöllum og Kili.  Kerlingafjöll ná yfir 150km2 og standa í 800-1500 metra hæð. Fjöllin eru öll sundurskorin af giljum og dældum. Fimm hæstu fjöllin eru Snækollur 1477 metrar, Loðmundur 1432 metrar, Mænir 1355 metrar, Skrattakollur 1158 metrar  og Skeljafell 1027 metrar. Í Kerlingafjöllum er nokkuð um jarðhita. Árið 1998 var lögð niður starfsemi skíðaskóla sem hafði verið þarna í mörg ár.



Kaldbakur

Kaldbakur er 1173 metra hátt fjall fyrir ofan Akureyri og tengist Hlíðarfjalli. Kaldbakur er að stórum hluta ársins þakinn fönn og er því virkilega fallegur.Við Rætur Kaldbaks er Látaströnd sem var einu sinni þéttbýlt og þar stunduðu fjölskyldur sjálfsþurftarbúskap og fiskiveiðar á meðan byggðin hélst. Nú til dags er Látaströnd í eyði. 

Mælifellshnjúkur

Mælifellshnjúkur 1138 metra hátt fjall sem að gnæfir yfir Skagafirði. Mælifellshnjúkur er sunnan Mælifells sem er þekkt prestsetur. Hnjúkurinn er mjög áberandi og sést úr 10 sýslum, það hlýtur að vera virkilega gott útsýni á toppnum vevgna þess hve hár hann er. Fjallið er að mestu leyti úr móbergi en það finnst líka svolítið af bólstrabergi. Fjallið er jafn gamalt Þórðarhöfða og öðrum fjöllum sem eru norðar í Skagafirði. 




Skagafjörður

-úr minninu

Mælifellshnjúkur
stígur fram úr þokunni
með stírur í augunum

Húseyjarkvíslin 
bindur silkiborða
um brún Valhólmans

Blönduhlíðarfjöll:
fylking stórfursta 
að funda í alheimsráði

Varmahlíð:
smáfríð stelpa
staðráðin í að vera 

Berglind Gunnarsdóttir

Skjaldbreiður

Skjaldbreiður er norðaustur af Þingvallavatni og er hluti af fjallahring Þingvallasveitarinnar. Skjaldbreiður er mjög fallegt dæmi um hraundyngju. Gígurinn er um 300 metrar í þvermál, frá honum rann hraun sem þekur m.a. vestanvert Þingvallasvæðið. Fjallið myndaðist í lok síðasta hluta ísaldarinnar í löngu gosi. Allt landsvæðið hefur haggast, risið og sigið eins og sést á sprungunum, Almannagjá og miklu fleiri sprungur. 



 

Sumarmorgunn


Gjárlyng og mosa mjúkir skuggar fólu,
maðra og fífill sváfu rótt á velli,
vatnið bar lit af himni, himinn fjólu,
hvítbeltuð þoka lá á Ármannsfelli.

Ljóselfur rauðar hægt um hvolfið flæða,
hamrana strjúka mjóir geislafingur.
Vaknaðu blómþjóð! Bylgjótt dalalæða
brennur og logar! fugl í kjarri syngur!

Skarlat og gull um Skjaldbreið hrynja lætur
skínandi morgunsól, en bláum nætur-
kyrtli í hlíðum Súlna sunnanmegin
árrisul sæátt sveipar fast að háum
sofandi klettum. Dögg á grænum stráum
glóir sem perlusöfn úr djúpi dregin.

 

Ólafur Jóhann Sigurðsson

Tindastóll

Tindastóll er 995 metrar og u.þ.b. 18 km á lengd, fjallið gnæfir yfir Sauðarkrók. Í gamla daga var fjallið kallað Eilífsfjall og upp á fjallinu er tjörn sem er sunnan Einhyrningsdals. Þjóðsaga segir að hverja Jónsmessunótt fljóti upp óskasteinar og eitt sinn var stúlka sem var með einn slíkann í hendinni en gerði sér ekki grein fyrir því, hún óskaði þess að hún væri kominn í geysistóra veislu og það rættist. Í veislunni fékk hún gullbikar, þegar hún óskaði sér til baka gaf hún prestinum í sveitinni bikarinn og að launum fékk hún 3 jarðir í Skagafirði. Það fara ekki allir á Tindastól til þess að finna sér óskastein heldur til þess að njóta fallegs útsýnis. Ganga á fjallið er nokkuð erfitt og til að komast að góðri göngu upp á fjallið er gott að fara að sunnanverðu, gangan hefst við Skógarhvamm, gönguvegalengdin er 6 km og hækkunin er 650 metrar

Drangey

 

Hví und úfnum
öldubakka
sjónir indælar
seinkar þú að fela,
blíða ljós,
að bylgjuskauti
hnigið hæðum frá!

Hve máttu augum
eymdafjöld
láðbyggjenda líta?
Margir ro menn,
þó er mæða fleiri
hvers und brjósti byrgð.

En þú brosir
og burtu snýr
nýt á niðurvegu,

sól sorgfría!
Sofnir ro laukar
þeirs lifðu ljós þitt við.

Austur sér eg fljúga
að Esjutindi
hrafn af húsmæni,
hvar um gráföl ský
golu rekin
hefjast himni mót.

Bíddu, austankul!
Andvörp mín
máattu of bylgju bera
til innar ungu
athvarfslausu
sem mitt hjarta hlaut.

 
Jónas Hallgrímsson


Esja

Esjan er 914 metrar þar sem hún er hæst, fjallið er mest áberandi handan Kollafjarðar og upp af Kjalarnesi. Þegar að Reykjavík og Kjalarneshreppur voru sameinaðir varð Esjan innan Höfuðborgarinnar. Ýmis örnefni prýða Esjuna s.s. Kistufell austan Þverfellshorns og Kerhólakampur vestan þess. Þverfellshornið er vinsælasta gönguleiðin, þar er gengið upp klettana. Talið er að myndun Esjunar hafi átt sér stað í fyrri hluta Ísaldar, fyri 2,5 milljónum ára, hún er úr blágrýti og móbergi. Móskarðshnjúkar eru austan við Esju, þeir eru mjög ljósir lík og þeir væru baðaðir í sól. hnjúkurinn sem er austastur er hæstur. Svínaskarð er á milli hnjúkanna og Skálafells, þar var einu sinni alfaraleið milli Mosfellsdals og Kjósar. Skálafell er austan Svínaskarðs og uppi á fjallinu er farskipta- og endurvarpsstöð. Það er einnig skíðasvæði í Skálafellinu og þar hefur meðal annars KR svæði fyrir sig. 



Undir annars nafni

Hví und úfnum
öldubakka
sjónir indælar
seinkar þú að fela,
blíða ljós,
að bylgjuskauti
hnigið hæðum frá!

Hve máttu augum
eymdafjöld
láðbyggjenda líta?
Margir ro menn,
þó er mæða fleiri
hvers und brjósti byrgð.

En þú brosir
og burtu snýr
nýt á niðurvegu,
sól sorgfría!
Sofnir ro laukar
þeirs lifðu ljós þitt við.

Austur sér eg fljúga
að Esjutindi
hrafn af húsmæni,
hvar um gráföl ský
golu rekin
hefjast himni mót.

Bíddu, austankul!
Andvörp mín
máattu of bylgju bera
til innar ungu
athvarfslausu
sem mitt hjarta hlaut.

Jónas Hallgrímsson.

 
  Today, there have been 3 visitors (22 hits) on this page!  
 
This website was created for free with Own-Free-Website.com. Would you also like to have your own website?
Sign up for free